Skoðun

Hvað fær barn í veganesti?

Jóhann Þorsteinsson skrifar
Það segir í gömlu dægurlagi að lífið sé undarlegt ferðalag og hótelið okkar sé jörðin. Við sem erum svo lánsöm að vera foreldrar eigum okkur þá ósk að okkur megi takast að nesta börnin okkar vel fyrir þetta ferðalag. Sjálfur er ég svo þakklátur foreldrum mínum sem reyndu sitt besta til að undirbúa mig til þess að verða fær um að standa á eigin fótum, fær um að eiga samskipti og lifa og starfa í flóknum heimi.

Sem barn fékk ég tækifæri til að spreyta mig í íþróttum, í tónlistarskólanum, í skátunum, í sumarbúðum og í félagsstarfi KFUM og KFUK. Allt var þetta jákvætt en ég var enginn afreksmaður í íþróttum og tónfræði var ekki minn tebolli. Ég fann mig heima í KFUM og úr því starfi koma mínir æskuvinir. Í bráðum þrjá áratugi hef ég tilheyrt þessu félagi og það hefur mótað lífsýn mína.

Fyrr í vetur átti ég samtal við kunningja sem gaf sig á tal við mig af því að 10 ára sonur hans var byrjaður að mæta á fundi fyrir 9-12 ára drengi í KFUM á Akureyri. Hann viðurkenndi að hann þekkti lítið til starfs KFUM og því lék honum forvitni á að vita hvað við værum að gera. Svar mitt var yfirborðskennt, ég sagði honum að við færum í leiki og svo væri alltaf einhver fræðsla. Það sem ég hefði kannski átt að segja honum er að við erum að nesta unga drengi og stúlkur út í lífið. Leikirnir sem við förum í eru ekki bara leikir heldur þjálfun í samskiptum, tjáningu og almennri félagsfærni. Leikir þar sem allir eru af holdi og blóði og þú þarft engin þrívíddargleraugu til að gera leikinn raunverulegri.

Fræðslan er ekki bara einhver fræðsla heldur er hún um lausnara lífsins, Jesú Krist og hans kenningu. Jesús sagði: „Elska skalt þú náungann eins og sjálfan þig“ og þegar okkur tekst það þá útrýmum við einelti. Hann sagði: „Elskið óvini ykkar“ og það er erfitt nema þá helst að reyna að líta á þá sem vini. Hann kenndi okkur að fyrirgefa en í fyrirgefningunni felst von um nýtt upphaf.

Já, ég er þakklátur fyrir að hafa fengið að taka þátt í starfi KFUM og KFUK og ég er þakklátur þeim foreldrum sem í dag hvetja börnin sín til að kynna sér starf félagsins og vonandi finna þau sig heima þar og vonandi getur það starf verið hluti af því holla og góða nesti sem er okkur öllum svo mikilvægt í ferðalagi lífsins.




Skoðun

Sjá meira


×